5.10.2010 | 15:25
Er þetta staður og stund fyrir börn?
Hvað ætlar fólk að segja við barnið eftir að það fær golfkúlu í hausinn "Þetta er allt í lagi elskan mín...þú ert nefnilega að mótmæla!" Eða eru þessir foreldrar búnir að hugsa út í hvað gæti gerst ef nokkur þúsund manns þurfa að hlaupa í dauðans ofboði undan táragasi!! Þetta er ekki 17.júní!! Æji ég verð bara illur þegar ég sé svona, svo voru þarna menn með hunda!! Hávaðinn þarna í gær er svo mörgum sinnum meiri hávaði í eyrum hunda en manna.....!!
|
Meiddist á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Hlynur Baldursson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 1023
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


gattin
Athugasemdir
áttu þetta ekki að vera friðsöm mótmæli?
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 15:34
Meiri hlutinn vill friðsöm mótmæli, en það má alltaf reikna með óeirðaseggjum inn á milli. Ég myndi ekki fara með börn á mótmæli - né barnabörn, en vissulega erum við að mótmæla fyrir þeirra hönd.
Jóhanna Magnúsdóttir, 5.10.2010 kl. 15:39
Þessari stúlku hefur örugglega ekki fundist þetta vera friðsöm mótmæli er það?
Hlynur Baldursson, 5.10.2010 kl. 15:40
mér finnst þetta ekki vera staður fyrir börn og skil ekki að foreldra vilji að börnin sín horfi upp á svona og hvað þá lenda í einhverju - eins og þessi stelpa þarna augljóslega lenti í - það á ekki að blanda börnum inn í svona málefni - ætti ekki öryggi barnsins að vera í fyrirrúmi???
Ragnar Birkir Bjarkarson, 5.10.2010 kl. 16:23
Eitthvað fréttamyndbandið sýndi karl sem var með lítið barn á herðum sér. Slíkt ætti alls ekki að henda, hvað hefði nú gerst ef eitthver hópur manna hefði ráðist gegn lögreglunni og táragasi verið beitt, manninum hefði eflaust verið hrint og hefði getað misst barnið litla og drepið það. Man ekki hvort myndbandið var á MBL eða Vísi.
Mótmæli eru ekki fjölskylduskemmtun.
Arngrímur Stefánsson, 5.10.2010 kl. 16:26
Ég er hjartanlega sammála öllum sem hér hafa skrifað. Það er bara algjört ábyrgðarleysi að mæta með börn í svona mótmæli. Mér rann kalt vatn á milli skinns og hörunds þegar ég sá þetta myndskot af manninum með smábarnið á herðunum. Myndin af þessari litlu stúlku með blóðnasir og blóðugar hendur er ekki "frétt" sem sýnir reiði mótmælenda þótt Mbl.is hafi metið það svo. Heldur er þetta frétt um ábyrgðarleysi foreldris að vera með barnið þarna. Hvað ef fólkið hefði þurft að hlaupa undan óðum múg. Ég hef lent í uppþoti erlendis, þ.e. hef upplifað að sjá mannhaf koma æðandi á móti mér undan einhverri hættu og ég lamaðist af skelfingu en náði að koma mér í skjól við skúr sem var við hliðina á mér. Ég hefði verið troðin undir ef svo hefði ekki verið. Það að foreldrar komi með börnin sín á svona í algjörri óvissu um hvað gæti gerst ættu að hugsa sinn gang.
Jónína (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.